Hamingja frá Árbæ
LANDSMÓTSSIGURVEGARINN Hamingja er fædd okkur undan gullmolanum Gleði frá Árbæ og því sammæðra Heimsmeistaranum Geisla frá Árbæ. Faðir hennar er heiðursverðlaunahesturinn Draupnir frá Stuðlum.
Hamingja var sýnd 4 vetra gömul og hlaut 8,21 í aðaleinkunn þá um vorið og vann sér inn þátttökurétt á Landsmóti 2024 í Reykjavík þar sem hún gerði enn betur og hækkaði aðaleinkunn sína í 8,36 og með því tryggði hún sér sigur í flokki 4 vetra hryssna á mótinu. Hún fór aftur í dóm vorið eftir þá 5 vetra og hækkaði einkunn sína í 8,43.
Hamingja er nú komin í ræktun og farið að styttast í fyrsta afkvæmi hennar en hún er fylfull við Hrók frá Skipaskaga.

|
IS2020286936, leirljós
Faðir: Draupnir frá Stuðlum FF: Kiljan frá Steinnesi FM: Þerna frá Arnarhóli Móðir: Gleði frá Árbæ MF: Vökull frá Árbæ MM: Glás frá Votmúla 1 |
Aðaleinkunn kynbótamats 128 stig
|
Aðaleinkunn kynbótadóms 8,43
|
Sköpulagseinkunn - 8,61
Höfuð: 9,0 - Fínleg eyru - Vel opin augu - Bein neflína Háls/herðar/bógar: 9,0 - Reistur - Grannur - Langur - Klipin kverk Bak og lend: 9,0 - Góð baklína - Vöðvafyllt bak - Breitt bak - Vöðvafyllt lend Samræmi: 9,0 - Jafnvægisgott - Hlutfallarétt - Jafn bolur Fótagerð: 8,0 Réttleiki: 7,0 - Framf.: Útskefir - Afturf.: Nágengir Hófar: 8,0 - Fremur þröngir - Hvefldur botn Prúðleiki: 8,5 |
Hæfileikaeinkunn - 8,34
Tölt: 8,5 - Góð skreflengd - Rúmt - Takthreint Brokk: - 8,0 - Góð skreflengd - Svifgott Skeið: 8,0 - Taktgott Greitt stökk: 8,5 - Góð skreflengd - Jafnvægisgott - Taktgott Hægt stökk : 9,0 - Hvefld yfirlína - Framhátt - Takthreint - Jafnvægisgott Samstarfsvilji: 8,5 - Þjálni - Yfirvegun Fegurð í reið: 8,5 - Góð fótlyfta - Góður höfuðburður Fet: 8,0 - Takthreint Hægt tölt: 8,0 |