Drift frá Árbæ fór í byggingardóm á Hellu nú í vikunni og hlaut þar glæsilegan dóm en hún hlaut 8,25 fyrir sköpulag. Drift er fædd 2018 og er undan Katli frá Kvistum og Veronu frá Árbæ og er því hálfsystir Seðils frá Árbæ. En Verona er undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Feti. Sköpulagseinkunn - 8,25
Höfuð: 8,0 - Gróf eyru - Svipgott Háls, herðar og bógar: 8,5 - Hátt settur - Klipin kverk Bak og lend: 8,5 - Góð baklína - Vöðvafyllt bak Samræmi: 8,0 - Meðal fótahæð - Hlutfallarétt Fótagerð: 8,0 - Sinaskil í meðallagi - Öflugar sinar Réttleiki: 8,5 - Framf.: Réttir - Afturf.: Réttir Hófar: 8,5 - Fremur víðir - Hvefldur botn Prúðleiki: 7,0
0 Comments
Gæðingurinn Geilsi frá Árbæ fór í kynbótadóm á Hellu í liðinni viku og ekki hægt að segja annað en að hann hafi fengið glæsilegan dóm en hann hækkaði aðaleinkunn sína úr 8,23 í 8,45 sem skiptist í 8,66 fyrir sköpulag og 8,34 fyrir hæfileika. Geisli er fyrsta afkvæmi Gleði frá Árbæ en hún hlaut 8,23 í aðaleinkunn í kynbótadómi sjálf og er hún undan Vökli frá Árbæ sem var undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Feti og Aroni frá Strandarhöfði og móðir hennar er Glás frá Votmúla sem var undan Garúnu frá Stóra-Hofi og fyrrverandi heimsmeistaranum í fimmgangi Baldri frá Bakka. Faðir Geisla er Ölnir frá Akranesi sem hlaut 8,82 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta sé frábær dómur á þennan unga og efnilega stóðhest sem á framtíðina fyrir sér og verður gaman að fylgjast með honum á Landsmótinu í sumar. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hann lista vel í dómi en þau Lárus og Ásta eiga heiðurinn að tamningu og þjálfun á honum og færum við þeim öllum þökk fyrir. Geisli sinnir hryssum á Árbæ í sumar og er verðið undir hann 100.000 + vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Hann verður á húsi fram yfir Landsmót en fer síðan í í girðingu hér heima. Áhugasamir hafi samband við Guðmund í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríönnu í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.is. Aðaleinkunn kynbótadóms 8,45
Kveikur frá Árbæ hlaut glæsilegan byggingardóm í liðinni viku á Hellu en hann hlaut 8,25 fyrir sköpulag. Kveikur er fæddur 2018 og undan Keilu frá Árbæ (ae. 8,32) og Straum frá Feti (ae. 8,42). Keila móðir hans er undan heiðursverðlaunahrossunum Keili frá Miðsitju og Arndísi frá Feti. Straumur faðir hans er undan heiðursverðlaunahestinum Þrist frá Feti og Smáey frá Feti. Kveikur er nú kominn út í haga að njóta lífsins með hinum stóðhestunum og verður gaman að byrja á honum aftur í haust. Sköpulagseinkunn - 8,25
Höfuð: 7,5 - vel borin eyru - Krummanef Háls, herðar og bógar: 8,5 - Hátt settur - Góð yfirlína Bak og lend: 8,5 - Góð baklína - Vöðvafyllt bak - Afar breitt bak - Meða vöðvafylling lendar Samræmi: 9,0 - Jafnvægisgott - Langvaxið - Sívalvaxið Fótagerð: 7,0 - Lítil sinaskil - Aðeins hokinn í hnjám Réttleiki: 7,5 - Framf. innskeifir - Brokkar ekki Hófar: 8,5 - Hvefldur botn Prúðleiki: 7,0 Frændurnir Geisli og Seðill frá Árbæ verða á húsi og í girðingu heima í Árbæ í sumar.
Það er alltaf jafn gaman að sjá glæsilega hesta njóta sín í veðurblíðunni. Það er ekki hægt að segja annað en að Geisla og Ástu þyki gaman að sýna sig í sólinni á fallegum vetrardegi.
Það er gaman að segja frá því að Geisli frá Árbæ og Ásdís frá Árbæ voru hæst dæmdu kynbótahrossin í sínum flokkum hjá Hestamannafélaginu Geysi 2021. Geisli er 4 vetra stóðhestur sem var sýndur í vor á Hellu og hlaut hann þá 8,23 í aðaleinkunn sem skiptist í 8,36 fyrir sköpulag og 8,13 fyrir hæfileika. Hann er undan Gleði frá Árbæ og Ölni frá Akranesi. Ásdís er 5 vetra hryssa sem hlaut 8,26 í aðaleinkunn á miðsumarssýningunni á Hellu. Einkunnir hennar skiptast í 8,31 fyrir sköpulag og 8,23 fyrir hæfileika. Hún er undan heiðursverðlaunahryssunni Arndísi frá Feti og Stekk frá Skák. Þau voru bæði listilega sýnd af Árna Birni Pálssyni en það eru þau Ásta Björnsdóttir og Lárus Jóhann Guðmundsson sem eiga heiðurinn af þjálfun þeirra. Geisli er í okkar eigu en Ásdís er í eigu Volker Sill og óskum við honum til hamingju með þessa gæðingshryssu. Við erum ákaflega stolt af þessum bráðefnilegu hrossum og þakklát fyrir að fá þessa viðurkenningu fyrir okkar ræktun. ------------------ We are really proud to announce that Geisli frá Árbæ and Ásdís frá Árbæ are the highest judged breeding horses in their classes at our club Hestamannafélagið Geysir 2021.
Geisli is a 4 year old stallion who was shown last spring at FIZO in Hella and got a total score of 8,23, 8,36 for conformation and 8,13 for riding abilities. He is after Gleði frá Árbæ and Ölnir frá Akranesi. Ásdís is 5 years and got a total score of 8,26 at FIZO in Hella last summer. She got 8,31 for conformation and 8,23 for riding abilities. She is after the honorary prize mare Arndís frá Feti and Stekkur frá Skák. They were both shown at FIZO by Árni Björn Pálsson but their trainers are Ásta Björnsdóttir and Lárus Jóhann Guðmundsson. Geisli is owned by us but Ásdís is owned by Volker Sill and we would like to congratulate him with his grate mare. We are very proud of these two promising youngsters and it is a great honour to be recognised for our breeding. Þegar. öllum kynbótasýningum ársins er lokið er gaman að fara yfir árangur ársins. Hæst ber að nefna að hestagullið hann Seðill frá Árbæ er hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn í ár og ekki nóg með það heldur er hann jafnframt hæst dæmdi stóðhestur ársins þegar horft er á alla aldursflokka á heimsvísu. Hann er undan Veronu frá Árbæ sem er undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Feti og Aroni frá Strandarhöfði. Faðir Seðils er Sjóður frá Kirkjubæ sem hefur hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Geisli frá Árbæ er bráðefnilegur 4 vetra stóðhestur í okkar eigu sem er 5 hæst dæmdi stóðhestur ársins í sínum flokki hér á landi með 8,23 í aðaleinkunn. Hann er undan Gleði frá Árbæ sem er undan Glás frá Votmúla og Vökli frá Árbæ. En Vökull er undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Árbæ og Aroni frá Strandarhöfði og er því albróðir Veronu móður Seðils. Faðir Geisla er Ölnir frá Akranesi. Ásdís frá Árbæ er bráðefnileg 5 vetra hryssa sem hlaut 8,26 í aðaleinkunn nú í sumar. Hún er undan heiðrsverðlaunahryssunni Arndísi frá Feti. En Arndís er sammæðra þeim Veronu og Vökli, undan heiðursverðlaunahryssunni Vigdísi frá Feti. Faðir Ásdísar er Sökkull frá Skák. Einnig með 8,68 í aðaleinkunn en brotabrotum lægri en Seðill er hinn 9 vetra gamli gæðingur Glampi frá Kjarrhólum og er gaman að segja frá því að Glampi er undan hryssu úr okkar ræktun henni Gígju frá Árbæ sem er undan Glás frá Votmúla og Galsa frá Sauðárkróki. Annar hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn hér á landi í ár, Gandi frá Rauðalæk, sem hlaut 8,57 í aðaleinkunn er líka með Árbæjarblóð í æðum sér en móðir hans er Garún frá Árbæ sem stóð efst í 6 vetra flokki á Heimsmeistaramótinu 2015 í Herning. Hún er undan Glás frá Votmúla eins og Gleði og Gígja en faðir hennar er Aron frá Strandarhöfði. Við óskum eigendum Glampa, Ganda og Ásdísar innilega til hamingju með þessi glæsihross og þeirra árangur. Einnig viljum við þakka þjálfara- og sýnendateyminu okkar þeim Ástu, Lárusi og Árna Birni fyrir að ná alltaf því besta fram í drengjunum okkar. Það sem af er sumri er mjög góð fyljun hjá Seðli en sónað var frá honum nú í vikunni og nýjum hryssum bætt í hólfið hjá honum. Enn eru nokkur pláss laus og er hægt að bæta inn á hann hryssum eftir því sem við á. Seðill er hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn á heimsvísu það sem af er árinu. Hann hlaut 8,68 í aðaleinkunn í vor sem skiptist í 8,79 fyrir sköpulag og 8,62 fyrir hæfileika. Hann er með 9,0 í einkunn fyrir háls herðar og bóga, bak og lend, samræmi, hófa, greitt stökk, samstarfsvilja og fet. Hann er með 125 í aðaleinkunn kynbótamats.. Móðir hans er Verona frá Árbæ sem er undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Feti og Aroni frá Strandarhöfði og farðir hans er Sjóður frá Kirkjubæ sem hefur hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi og er undan Þyrnirós frá Kirkjubæ og heiðursverðlaunahestinum Sæ frá Bakkakoti. Seðill er spennandi kostur fyrir ræktendur sem vilja rækta fallega, jafnvíga alhliða gæðinga með þjála og góða lund. Hér má sjá myndband af honum frá því á kynbótasýningunni í vor. Verðið undir.hann er 99.200 m/vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.is. Aðaleinkunn kynbótadóms 8,68
Ásdís frá Árbæ var sýnd í kynbótadómi núna miðsumars á Hellu og hlaut hún glæsilegan dóm. En hún hlaut 8,31 fyrir sköpulag og 8,23 fyrir hæfileika sem gerir 8,26 í aðaleinkunn. Glæsilegar einkunnir á þessari bráðefnilegu 5 vetra hryssu. Ásdís er fædd okkur en við seldum hana s.l. vetur. Hún er undan heiðursverðlaunahryssunni Arndísi frá Feti og Stekk frá Skák. Eigandi Ásdísar er Volker Sill og óskum við honum innilega til hamingju með hana. Frændurnir Seðill frá Árbæ og Geisli frá Árbæ taka á móti hryssum í Árbæ í sumar. Þeir eru ekki bara gullfallegir báðir tveir heldur eru þeir með frábært geðslag sem skilar sér m.a. í mikilli jákvæðni og eru þeir alltaf tilbúnir að vinna fyrir knapann. Þeir fóru báðir í kynbótadóm á Hellu í síðustu viku og stóðu sig frábærlega. Seðill sem er 6 vetra hækkaði einkunn sína frá því í fyrra í 8,79 fyrir sköpulag og 8,62 fyrir hæfileika sem gerir 8,68 í aðaleinkunn og er hann hæst dæmdi 6 vetra hesturinn það sem af er þessu ári á heimsvísu. Geisli sem er 4 vetra var að þreyta frumraun sína í kynbótabrautinni og stóð sig með prýði en hann hlaut 8,36 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir hæfileika sem gerir 8,23 í aðaleinkunn. Nánari upplýsingar um Seðil má sjá hér og nánari upplýsingar um Geisla má sjá hér.
Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.is. |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
December 2023
Categories |