ÁRBÆR HROSSARÆKT
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures

Verona hlýtur heiðursverðlaun

12/5/2023

0 Comments

 
Picture
Fagráðstefna hrossaræktarinnar fór fram um liðna helgi og þar hlaut Verona frá Árbæ heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hún stóð jafnframt efst yfir þær hryssur sem hlutu verðlaunin og hlaut því Glettubikarinn.

"Þakklæti er það fyrsta sem kemur upp í huga mér á þessari stundu en ekki óraði mig fyrir því fyrir 18 árum þegar foreldrar mínir gáfu mér Veronu í þrítugsafmælisgjöf að ég ætti eftir að standa í þessum sporum í dag. Drottningin mín er komin í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi sem er æðsta viðurkenning sem ræktunarhryssa geta hlotið og ekki bara heiðursverðlaun heldur stendur hún efst yfir þær hryssur sem hlutu þessa viðurkenningu í ár og hlaut Glettubikarinn. 

Verona er undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Feti og er hún þriðja afkvæmi Vigdísar til að hljóta þessa viðurkenningu en áður hafa þau Arndís frá Feti og Vilmundur frá Feti hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Ég hafði alltaf mikla trú á henni og vissi að hún væri mikill gæðingur. Hún er hæfileikarík, gullfalleg og grípur alltaf augað þegar þú horfir yfir stóðið og er það eiginleiki sem hún hefur gefið áfram til afkvæma sinn. Það sem einkennir afkvæmi hennar helst er að þau eru háfætt, fallega byggð, jákvæð og alltaf til í að vinna með knapanum ásamt því að vera með mikil og góð skil milli gangtegunda.

Hún hefur gefið mér margan gæðinginn og hafa fimm afkvæmi hennar hafa hlotið fullnaðardóm og fjögur þeirra hafa hlotið fyrstu verðlaun. Af afkvæmum hennar er Seðill  frá Árbæ (F: Sjóður frá Kirkjubæ) eflaust þekktastur en hann hefur staðið sig vel á kynbótabrautinni og hlaut hvorki meira né minna en 8,75 í aðaleinkunn 7 vetra gamall. Hans fyrstu afkvæmi komu til tamningar nú í haust og ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt hjá honum sem kynbótahesti. 

Þau afkvæma hennar sem verða á húsi í vetur eru þeir Seðill og Auga-Steinn (F: Thór-Steinn frá Kjartansstöðum) á sjöunda vetur sem ætla jafnvel að reyna fyrir sér á hringvellinum næstu keppnistímabil, Jökull (F: Rammi frá Búlandi) á fimmta vetur sem hlaut 8,27 fyrir sköpulag í vor og Rún (F: Safír frá Mosfellsbæ) á fjórða vetur sem er bráð efnileg fegurðardís sem verður gaman að fylgja eftir. Stefnt er með hana og Jökul í kynbótadóm á næsta ári.
Dætur hennar þær Drift (F: Ketill frá Kvistum), Díva (F: Toppur frá Auðsholtshjáleigu)  og Þórdís (F: Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu) eru allar komnar í ræktun og verður spennandi að sjá hvort einhver þeirra  feti í fótspor móður sinnar.

Drottningin varð 19 vetra í vor og í fyrsta sinn endurtók ég eldri pörun en hún er fylfull við Sjóð frá Kirkjubæ og ekki laust við að ég sé mjög spennt fyrir því að það folald fæðist og væri nú ekki verra að fá hryssu í þetta sinn en myndi svo sem ekki gráta ef það kæmi hestur.

Á þessum tímapunkti er ég fremst af öllu þakklát mömmu og pabba fyrir að hafa ræktað þennan mikla gæðing og ég veit að pabbi er með okkur í anda og fagnar þessum árangri okkar ræktunar. En þessum frábæra árangri væri að sjálfsögðu ekki náð nema með hóp af frábæru fólki í kringum mig sem hefur stutt mig og aðstoðað mig við að gera hana og afkvæmi hennar að því sem þau eru í dag og þeim verð ég ævinlega þakklát. 

Við Verona þökkum auðmjúkar fyrir okkur <3"


0 Comments

Tilnefnd sem ræktunarbú ársins

12/4/2023

0 Comments

 
Árbær var eitt af 12 búum sem voru tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2023 og hlutu viðurkenningu á Fagráðstefnu hrossaræktarinnar í Félagsheimili Fáks í gær. Við erum afar stolt af ræktuninni okkar og heiður að vera í hópi þessara glæsilegu búa sem voru tilnefnd sem ræktunarbú ársins.

​-----
Árbær was nominated as one of the 12 breeding farms of the year 2023 and got awarded at the conference Hrossarækt 2023 yesterday. We are extremely proud of our little breeding and it was an honour be one of the 12 farms that were nominated.

​
0 Comments

    Author

    Write something about yourself. No need to be fancy, just an overview.

    Archives

    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    April 2023
    March 2023
    November 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    February 2022
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures