ÁRBÆR HROSSARÆKT
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures

Auga-Steinn í glæsilegan dóm

7/30/2023

0 Comments

 
PictureAuga-Steinn og Aðalheiður 2023
Veronusonurinn Auga-Steinn frá Árbæ var sýndur í kynbótadómi á Hellu nú í vikunni og hlaut glæsilegan dóm. En hann hlaut 8,21 fyrir sköpulag og 8,30 fyrir hæfileika sem gerir 8,27 í aðaleinkunn.

Auga-Steinn er 6 vetra gamall undan þeim Thór-Steini frá Kjartansstöðum og Veronu frá Árbæ. Hann er fimmta afkvæmi Veronu til að hljóta fullnaðardóm og það fjórða til að fara í fyrstu verðlaun. Með þessu uppfyllir Verona nú allar kröfur sem eru gerðar til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi sem gerir þennan dóm hans enn sætari og verður gaman að sjá þegar kynbótamatið verður reiknað í haust hvar hún endar í röðinni. En við erum ákaflega stolt af henni og afkvæmum hennar.

Það var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem sýndi hann með glæsibrag en hann hefur verið hjá henni frá í byrjun júní en þjálfun hans fram að því hefur verið í höndum góðra vina okkar og meðeiganda í honum þeirra Eddu Rún og Sigga Matt ásamt þeirra fólki.
​

Aðaleinkunn kynbótadóms 8,27

Sköpulagseinkunn - 8,21
Höfuð: 8,5 - Fínleg eyre - Afar svipgott
Háls, herðar og bógar: 8,5 - Góð yfirlína - Góð bógalega
Bak og lend: 8,5 - Góð baklína - Löng lend
Samræmi: 8,0 - Jafnvægisgott -Léttbyggt - Þröngur um brjóst
Fótagerð: 8,0 - Þurrir fætur
Réttleiki: 7,0 - Framf: Útskeifir - Nágengir
Hófar: 8,5 - Hvelfdur botn
​Prúðleiki: 7,5
Hæfileikaeinkunn - 8,30
​
Tölt: 8,5 - Mjukt
Brokk: 8,0 - Takthreint
Skeið: 8,0 - Meðalrými - Öruggt
Greitt stökk: 8,0 - Rúmt
Hægt stökk: 8,5 - Léttstígt
Samstarfsvilji: 8,5 - Þjálni
Fegurð í reið: 8,0
​Fet: 9,0 - Stöðugt - Takhreint
​Hægt tölt: 8,0
0 Comments



Leave a Reply.

    Author

    Write something about yourself. No need to be fancy, just an overview.

    Archives

    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    April 2023
    March 2023
    November 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    February 2022
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures