ÁRBÆR HROSSARÆKT
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures

Geisli í glæsilegan dóm

6/5/2022

0 Comments

 
Picture
Gæðingurinn Geilsi frá Árbæ fór í kynbótadóm á Hellu í liðinni viku og ekki hægt að segja annað en að hann hafi fengið glæsilegan dóm en hann hækkaði aðaleinkunn sína úr 8,23 í 8,45 sem skiptist í 8,66 fyrir sköpulag og 8,34 fyrir hæfileika.

Geisli er fyrsta afkvæmi Gleði frá Árbæ en hún hlaut 8,23 í aðaleinkunn í kynbótadómi sjálf og er hún undan Vökli frá Árbæ sem var undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Feti og Aroni frá Strandarhöfði og móðir hennar er Glás frá Votmúla sem var undan Garúnu frá Stóra-Hofi og fyrrverandi heimsmeistaranum í fimmgangi Baldri frá Bakka. Faðir Geisla er Ölnir frá Akranesi sem hlaut 8,82 í aðaleinkunn í kynbótadómi.

Það er ekki hægt að segja annað en að þetta sé frábær dómur á þennan unga og efnilega stóðhest sem á framtíðina fyrir sér og verður gaman að fylgjast með honum á Landsmótinu í sumar. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hann lista vel í dómi en þau Lárus og Ásta eiga heiðurinn að tamningu og þjálfun á honum og færum við þeim öllum þökk fyrir.

Geisli sinnir hryssum á Árbæ í sumar og er verðið undir hann 100.000 + vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Hann verður á húsi fram yfir Landsmót en fer síðan í í girðingu hér heima. Áhugasamir hafi samband við Guðmund í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríönnu í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
​

Aðaleinkunn kynbótadóms 8,45

Sköpulagseinkunn - 8,66
Höfuð: 7,5 - Vel opin augu - Djúpir kjálkar
Háls, herðar og bógar: 9,0 - Hátt settur - Langur - Klipin kverk - Góð yfirlína - Skásettir bógar - Afar háar herðar
Bak og lend: 9,5 - Afar góð baklína - Vöðvafyllt bak - Breitt bak - Afar öflug lend - Jöfn lend
Samræmi: 9,0 - Jafnvægisgott - Afar fótahátt - Hlutfallarétt - Jafn bolur
Fótagerð: 8,0 - Sverir liðir - Sinaskil í meðallagi - Þurrir fætur
Réttleiki: 7,5 - Útskeifur
Hófar: 8,5 - Hvelfdur botn
​Prúðleiki: 7,5
Hæfileikaeinkunn - 8,34
Tölt: 8,5 - Góð skreflengd - Rymt - Hvefld yfirlína - Takthreint
Brokk: 7,5 - Meðalrými - Takthreint
Skeið: 8,0 - Rúmt - Góð fótahreyfing
Greitt stökk: 9,0 - Léttar hreyfingar - Ferðmikið - Jafnvægisgott
Hægt stökk: 8,5 - Léttstígt - Takthreint
Samstarfsvilji: 8,5 - Góð framhugsun - þjálni
Fegurð í reið: 8,5 - Góð fótlyfta - Góður höfuðburður
​Fet: 8,0 - Takhreint
​Hægt tölt: 8,0 - Góð fótlyfta
0 Comments



Leave a Reply.

    Author

    Write something about yourself. No need to be fancy, just an overview.

    Archives

    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    April 2023
    March 2023
    November 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    February 2022
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures