![]() Sónað var í gær frá Seðli og var fyljunin mjög góð. Hann tekur fagnandi á móti öllum hryssum og er því ekkert mál að bæta nýjum hryssum inn hjá honum. Áhugasamir hafi samband við Guðmund í síma 899 5692 eða Lárus í síma 661 2145.
0 Comments
![]() Hinn 6 vetra gamli Geisli frá Árbæ verður fulltrúi Íslands í flokki 6 vetra stóðhesta á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Oirschot, Hollandi, nú í ágúst. Geisli er með 8,49 í aðaleinkunn í kynbótadómi og er undan þeim Ölni frá Akranesi (ae. 8,82) og Gleði frá Árbæ (ae. 8,23). Faðir Gleði er Vökull frá Árbæ, sem er undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Árbæ, og móðir hennar er Glás frá Votmúla sem var undan Baldri frá Bakka og Garúnu frá Stóra-Hofi. Knapi á honum eins og áður verður Árni Björn Pálsson. VIð erum ákaflega stolt af þessum gullmola og hlakkar okkur til að fylgja þeim félögum eftir til Hollands í þessu næsta verkefni þeirra. Geisli er kominn með frábært heimili og verður gaman að fylgjast með honum á nýjum vettvangi. --------------- The 6 year old Geisli frá Árbæ will be representing Iceland in the group of 6 year old stallions at the World Championship in Oirschot next August. Geisli has a total score of 8,49. His parents are Ölnir frá Akranesi and Gleði frá Árbæ.. Gleði's father is Vökull frá Árbæ who is after the honorary prize horses Aron frá Strandarhöfði and Vigdís frá Feti and Gleði's mother is Glás frá Votmúla which was after Baldur frá Bakka and Garún frá Stóra-Hofi. His rider as before will be Árni Björn Pálsson. We are extremely proud of this unique horse and we can't wait to follow the to their new project in the Netherlands. Geisli is owned by us at the moment but as can be understood he is now looking for a new home abroad. Aðaleinkunn kynbótadóms 8,49
![]() Drift frá Árbæ fór í kynbótadóm á Hellu í nú í júní og hlaut hún glæsilegan dóm. En hún hlaut 8,38 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir hæfileika sem gerir 8,23 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og hægt stökk. Drift er 5 vetra gömul undan Katli frá Kvistum og Veronu frá Árbæ og er því sammæðra Seðli. Hún er fjórða afkvæmi Veronu til að fara í kynbótadóm og það þriðja sem fer í fyrstu verðlaun. En Seðill er með 8,75 í aðaleinkunn, Díva 8,29 og Þórdís 7,95. Drift er tamin og þjálfuð af þeim Lárusi og Ástu og meistaralega sýnd af Árna Birni og fáum við þeim þakkir fyrir. Drift er nú komin út í haga og ef allt gengur upp fæðist folald undan henni og Hannibal frá Þúfum næsta sumar. Aðaleinkunn kynbótadóms 8,23
![]() Seðill og Geisli frá Árbæ eru spennandi kostur fyrir ræktendur sem vilja rækta fallega, jafnvíga alhliða gæðinga með þjála og góða lund. Seðill og Geisli verða á húsi og í girðingu hjá okkur í Árbæ sumarið 2023. Verðið undir þá er 150.000 m/vsk. Inn í verðinu er girðingargjald og 1 sónar. Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Það er alltaf merki um að vorið sé að koma þegar fyrsta folald ársins fæðis en það fæddist einmitt í morgun. Brún hryssa undan þeim Hilmu frá Árbæ og Seðli frá Árbæ.
Hilma móður hennar hlaut 8,04 í aðaleinkunn þegar hún fór í dóm og er hún undan Loka frá Selfossi og Hrefnu frá Árbæ. Seðill hlaut 8,75 í aðaleinkunn í kynbótadómi í fyrra og er undan þeim Veronu frá Árbæ og Sjóði frá Kirkjubæ. Þetta er annað afkvæmi Hilmu og Seðils en í fyrra fæddist þeim gullfallegur hestur, Hrókur frá Árbæ. Seðill hlaut viðurkenningu sem sem hæst dæmdi 6v stóðhesturinn, ræktaður af Fáksfélaga, árið 2021 með 8,68 í aðaleinkunn ásamt því að vera hæst dæmda kynbótahrossið ræktað af og í eigu Fáksfélaga 2021.
Hann var einnig heiðraður sem hæst dæmdi stóðhesturinn í flokki stóðhesta 7v og eldri árið 2022 með einkunnina 8,75 ásamt því að vera hæst dæmda kynbótahrossið ræktað af og í eigu Fáksfélaga 2022. Erum óendanlega stolt af þessum einstaka gæðingi sem hefur nú lagt kynbótaskóna á hilluna og undirbýr sig nú í rólegheitunum fyrir verkefni framtíðarinnar. Takk elsku Lárus og Ásta fyrir allan ykkar þátt í þessu og að hafa hugsað um hann eins og ykkar frá upphafi og takk Árni Björn fyrir að sýna hann með glæsibrag í kynbótadómi Seðill frá Árbæ, f.ár 2015 F: Sjóður frá Kirkjubæ, ae. 8,70 M: Verona frá Árbæ, ae. 8,32 Aðaleinkunn kynbótamats 130 ![]() Um liðna helgi vorum við heiðruð fyrir Geisla frá Árbæ og Ásdísi frá Árbæ á uppskeruhátíð hestamannafélagsins Geysis. En þau voru hæst dæmdu kynbótahrossin í sínum flokkum ræktuð af félagsmönnum. Hann með 8,46 í aðaleinkunn sem 5 vetra stóðhestur og hún með 8,42 í aðaleinkunn sem 6 vetra hryssa. Geisli er í okkar eigu og var sýndur af Árna Birni Pálssyni en Ásdís er í eigu Volker Sill og sýnandi hennar var Jakob Svavar Sigurðsson og óskum við þeim til hamingju með glæsilega sýningu á henni. -------- Last weekend we were awarded for breeding Geisli frá Árbæ and Ásdís frá Árbæ at our club Hestamannafélagið Geysir. They were the highest judged horses in their groups in FIZO, he as a 5 year old stallion with a total score of 8,46 and she as a 6 year old mare with a total score of 8,42. Geisli is owned by us and was shown by Árni Björn Pálsson but Ásdís is owned by Volker Sill and shown by Jakob Svavar Sigurðsson and we would like to congratulate them. ![]() Þeir frændur Seðill og Geisli stóðu sig glæsilega á Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hellu fyrr í þessum mánuði. Geisli frá Árbæ hafnaði í 2 sæti í flokki 5 vetra stóðhesta með 8,46 í aðaleinkunn. Seðill hafnaði í 5 sæti í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri með 8,58 í aðaleinkunn. ![]() Við bjóðum ykkur velkomin í heimsókn til okkar sunnudaginn 10. júlí frá klukkan 11:00 - 16:00. Hrossaræktarbúið Árbæ er staðsett í Rangárþingi Ytra, um 6 km frá mótssvæðinu á Gaddstaðaflötum, Hellu. Okkur hafa fæðst um 40 fyrstu verðlauna hross frá því við hófum okkar ræktun. Seðill frá Árbæ er hæst dæmdi stóðhesturinn úr okkar ræktun með 8,75 í aðaleinkunn og heimsmeistarinn Garún frá Árbæ er hæst dæmda hryssan með 8,62 í aðaleinkunn. Léttar veitingar verða í boði og verða stóðhestarnir Seðill og Geisli á húsi ásamt efnilegu ungviði, mæðrum sínum og fleiri gæðingum úr okkar ræktun. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn :) -------- We would like to welcome you to open house at Árbær on Sunday July 10th, between 11:00 - 16:00. Árbær is located in Rangárþing Ytra, about 6 km from the competition area at Gaddstaðaflatir in Hella. We have bred about 40 first prize horses since we started our breeding. The highest judged stallion is Seðill frá Árbæ with a total score of 8,75 and the world champion Garún frá Árbæ is the highest judged mare with a total score of 8,62. We would like to invite you to come and have coffee with us and meet Geisli, Seðill, their moms, some promising youngsters and more of our horses. Looking forward to seeing you next Sunday :) Frændurnir Seðill og Geisli frá Árbæ taka á móti hryssum í Árbæ, Rangárþingi Ytra, í sumar. Þeir verða í húsnotkun fram yfir Landsmót og verður þeim sleppt út í hryssur í kringum 10. júlí. Geisli og Seðill eru spennandi kostir fyrir ræktendur sem vilja rækta fallega, jafnvíga alhliða gæðinga með þjála og góða lund.
Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692 og Lárus í síma 661 2145 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
|
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
December 2023
Categories |