Seðill frá Árbæ fór í dóm nú í vikunni á Hellu eins og Geisli frændi hans. Hann hækkaði einkunnir sínar frá í fyrra og hlaut nú fyrir sköpulag 8,79, fyrir hæfileika 8,62 og gerir það 8,68 í aðaleinkunn og er hann að svo stöddu hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn á þessu ári á heimsvísu. Frábær árangur þar hjá þessum einstaka höfðingja. Seðill var sýndur listilega vel af Árna Birni eins og í fyrra en það eru þau Lárus og Ásta sem eiga heiðurinn af þjálfuninni á honum. Seðill sinnir hryssum hér á Árbæ í sumar og er verðið undir.hann er 99.200 m/vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.is.
0 Comments
Geisli frá Árbæ fór í kynbótadóm á Hellu í þessari viku. Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi staðið sig frábærlega. Hann flaug beint í fyrstu verðlaun en hann hlaut 8,36 fyrir sköpulag, 8,15 fyrir hæfileika og 8,23 í aðaleinkunn. Geisli er fyrsta afkvæmi Gleði frá Árbæ en hún hlaut 8,23 í aðaleinkunn í kynbótadómi sjálf og er hún undan Vökli frá Árbæ sem var undan heiðursverðlaunahrossunum Vigdísi frá Feti og Aroni frá Strandarhöfði og móðir hans Glás frá Votmúla sem var undan Garúnu frá Stóra-Hofi og fyrrverandi heimsmeistaranum í fimmgangi Baldri frá Bakka. Faðir hans er Ölnir frá Akranesi sem hlaut 8,82 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta sé frábær dómur á þennan unga og efnilega stóðhest. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hann lista vel í dómi en þau Lárus og Ásta eiga heiðurinn að tamningu og þjálfun á honum og færum við þeim öllum þökk fyrir. Geisli sinnir hryssum hér á Árbæ í sumar og er verðið undir hann 50.000 + vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Áhugasamir hafi samband við Guðmund í síma 899 5692, Maríönnu í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.
Það var vel við hæfi að byrja þessa viku á fyrsta folaldi sumarsins. En í kvöld fæddist okkur hestur undan Keilu frá Árbæ og Draupni frá Stuðlum. Keila móðir hans er fædd 2010 og er undan heiðursverðlaunahrossunum Arndísi frá Feti og Keili frá Miðsitju. En Keilir er einstakur gullmoli sem var í okkar eigu og hlaut hann Sleipnisbikarinn fræga á Landsmótinu 2006. Hún er hæst dæmda afkvæmi móður sinnar með 8,29 í aðaleinkunn í kynbótadómi. 8,31 fyrir sköpulag og 8,27 fyrir hæfileika. ------- The best way to start a new week is to see a foal take it's first step into the world. Tonight Keila frá Árbæ gave birth to a beautiful stallion after Draupnir frá Stuðlum. He is our first foal this summer and we can't wait to get more. Keila is born in 2010 and is after the honorary prize horses Arndís frá Feti and Keilir frá Miðsitju. Keilir is a gem that was owned by us for many years and got the Sleipnir trophy for his offspring at Landsmót 2006. Keila has a total score of 8,29, 8,31 for conformation and 8,27 for riding abilities. Seðill frá Árbæ mun taka á móti hryssum í Árbæ sumarið 2021. Seðill fór í kynbótadóm 2020 og hlaut þá 8,61 fyrir sköpulag og 8,35 fyrir hæfileika sem gerir 8,44 í aðaleinkunn. Hann er með 125 stig í aðaleinkunn kynbótamats (BLUP). Seðill er áhugaverður hestur sem vakti mikla athygli þegar hann kom fram á Landssýningu kynbótahrossa. "Hann gerir mikið úr sér í reið með 9,0 fyrir háls og herðar og nýtir það vel í reið. Hann er jafnvígur og afar efnilegur alhliðahestur." Eins og Þorvaldur Kristjánsson orðaði það í kynningunni á honum þar. Lárus sem á heiðurinn að tamningu og þjálfun á Seðli lýsir honum svo "Seðill býr yfir virkilega spennandi eiginleikum, fasmikill alhliða gæðingur, jafnvígur á öllum gangi, einstaklega samstarfsfús hestur með þjála lund." Foreldrar Seðils eru þau Sjóður frá Kirkjubæ, ae. 8,70 sem hefur hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi og Verona frá Árbæ, ae. 8,32, sem eru undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Feti. Nokkur afkvæmi fæddust undan Seðli s.l. sumar og eru þau öll mjög lofandi með glæsilegan frampart eins og pabbi sinn og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Verðið undir hann er 80.000 + vsk. Inn í því er girðingargjald og 1 sónar. Allar nánari upplýsingar um notkun og pantanir veita Guðmundur í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið marianna@arbae.is.
|
Sköpulagseinkunn - 8,61 Höfuð: 8,5 - vel borin eyru - Vel opin augu Háls, herðar og bógar: 9,0 - Reistur - Langur - Háar herðar Bak og lend: 8,5 - Góð baklína - Vöðvafyllt bak Samræmi: 8,5 - Afar fótahátt - Hlutfallarétt Fótagerð: 8,5 - Þurrir fætur - Öflugar sinar Réttleiki: 8,0 Hófar: 9,0 - Hvelfdur botn - Efnismiklir Prúðleiki: 7,5 | Hæfileikaeinkunn - 8,35 Tölt: 8,5 - Há fótlyfta - Góð skreflengd - Takthreint Brokk: 8,5 - Há fótlyfta - Takthreint Skeið: 7,5 Stökk: 8,5 - Góð skreflengd - Ferðmikið Hægt stökk: 8,5 - Meðal skreflengd - Svifgott - Takthreint Samstarfsvilji: 8,5 - Mikil þjálni Fegurð í reið: 8,5 - Mikil reising Fet: 8,5 - Skrefmikið - Takhreint Hægt tölt: 8,5 |
Fyrsta afkvæmi Seðils frá Árbæ fæddist í gær. Rauðstjörnótt hryssa undan Birgittu frá Garðabæ. En Birgitta er undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Bríeti frá Kirkjubæ. Birgitta hlaut 8,08 í aðaleinkunn í kynbótadómi sem skiptist í 8,22 fyrir hæfileika og 7,87 fyrir sköpulag.
Þessi fallega prinsessa mun eignast nokkur systkini á næstunni en næstu afkæmi hans ættu að fæðast seinna í mánuðinum. Von er á níu afkvæmum undan honum í sumar.
Þessi fallega prinsessa mun eignast nokkur systkini á næstunni en næstu afkæmi hans ættu að fæðast seinna í mánuðinum. Von er á níu afkvæmum undan honum í sumar.
The first offspring of Seðill frá Árbæ was born yesterday. A chestnut mare with a star. She is after Birgitta frá Garðabær. Birgitta is after Hugi frá Hafsteinsstaðir and Bríet frá Kirkjubæ. Birgitta got 7,87 for conformation and 8,22 for riding ability which makes a total score of 8,08.
This beautiful little princess will get some siblings later this month but we are expecting nine offsprings of Seðill this summer.
This beautiful little princess will get some siblings later this month but we are expecting nine offsprings of Seðill this summer.
Author
Write something about yourself. No need to be fancy, just an overview.
Archives
December 2023
November 2023
August 2023
July 2023
June 2023
April 2023
March 2023
November 2022
July 2022
June 2022
May 2022
February 2022
October 2021
August 2021
July 2021
June 2021
April 2021
August 2020
July 2020
June 2020
May 2020
April 2020