ÁRBÆR HROSSARÆKT
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures

Búið að Sóna frá Seðli

7/27/2023

0 Comments

 
Picture
Sónað var í gær frá Seðli og var fyljunin mjög góð. Hann tekur fagnandi á móti öllum hryssum og er því ekkert mál að bæta nýjum hryssum inn hjá honum.

Áhugasamir hafi samband við Guðmund í síma 899 5692 eða Lárus í síma 661 2145.

0 Comments

Geisli frá Árbæ á HM í Hollandi

7/14/2023

0 Comments

 
PictureGeisli og Árni Björn 2023
 Hinn 6 vetra gamli Geisli frá Árbæ verður fulltrúi Íslands í flokki 6 vetra stóðhesta á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Oirschot, Hollandi, nú í ágúst.

Geisli er með 8,49 í aðaleinkunn í kynbótadómi og er undan þeim Ölni frá Akranesi (ae. 8,82) og Gleði frá Árbæ (ae. 8,23). Faðir Gleði er Vökull frá Árbæ, sem er undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Árbæ, og móðir hennar er Glás frá Votmúla sem var undan Baldri frá Bakka og Garúnu frá Stóra-Hofi.

Knapi á honum eins og áður verður Árni Björn Pálsson. VIð erum ákaflega stolt af þessum gullmola og hlakkar okkur til að fylgja þeim félögum eftir til Hollands í þessu næsta verkefni þeirra.

​Geisli er kominn með frábært heimili og verður gaman að fylgjast með honum á nýjum vettvangi.

---------------

​The 6 year old Geisli frá Árbæ will be representing Iceland in the group of 6 year old stallions at the World Championship in Oirschot next August.


Geisli has a total score of 8,49. His parents are Ölnir frá Akranesi and Gleði frá Árbæ.. Gleði's father is Vökull frá Árbæ who is after the honorary prize horses Aron frá Strandarhöfði and Vigdís frá Feti and Gleði's mother is Glás frá Votmúla which was after Baldur frá Bakka and Garún frá Stóra-Hofi.

​His rider as before will be Árni Björn Pálsson. We are extremely proud of this unique horse and we can't wait to follow the to their new project in the Netherlands.

Geisli is owned by us at the moment but as can be understood he is now looking for a new home abroad. 


Aðaleinkunn kynbótadóms 8,49

Sköpulagseinkunn - 8,76
Höfuð: 8,0 - Vel opin augu - Djúpir kjálkar
Háls, herðar og bógar: 9,0 - Hátt settur - Klipin kverk - Góð yfirlína - Skásettir bógar
Bak og lend: 9,5 - Afar góð baklína - Vöðvafyllt bak - Breitt bak - Öflug lend - Jöfn lend - Löng lend
Samræmi: 9,0 - Jafnvægisgott - Afar fótahátt - Léttbyggt - Sívalvaxið - Hlutfallarétt
Fótagerð: 8,5 - Sverir liðir - Sinaskil í meðallagi - Þurrir fætur - Öflugar sinar
Réttleiki: 7,5 - Framf.: R) Brotin tálína - Afturf.: R) Brotin tálíng
Hófar: 8,5 - Hvelfdur botn - Samhverfir
​Prúðleiki: 8,0
Hæfileikaeinkunn - 8,34
Tölt: 8,5 - Mjúkt - Góð  fótlyfta - Rúmt - Takthreint
Brokk: 8,0 - Góð  fótlyfta - Góð skreflengd - Meðalrými - Hvefld yfirlína
Skeið: 8,5 - Rúmt - Góð skreflengd
Greitt stökk: 8,5 - Góð skreflengd - Svifgott
Hægt stökk: 8,5 - Hvefld yfirlína - Jafnvægisgott
Samstarfsvilji: 8,5 - Samstarfsfús
Fegurð í reið: 8,5
Fet: 7,5 - Fremur framtakslítið - Takthreint 

​Hægt tölt: 8,0
0 Comments

Drift í glæsilegan dóm

6/25/2023

0 Comments

 
PictureDrift og Árni Björn á yfirliti júní 2023
Drift frá Árbæ fór í kynbótadóm á Hellu í nú  í júní og hlaut hún glæsilegan dóm. En hún hlaut 8,38 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir hæfileika sem gerir 8,23 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og hægt stökk.

Drift er 5 vetra gömul undan Katli frá Kvistum og Veronu frá Árbæ og er því sammæðra Seðli. Hún er fjórða afkvæmi Veronu til að fara í kynbótadóm og það þriðja sem fer í fyrstu verðlaun. En Seðill er með 8,75 í aðaleinkunn, Díva 8,29 og Þórdís 7,95.

Drift er tamin og þjálfuð af þeim Lárusi og Ástu og meistaralega sýnd af Árna Birni og fáum við þeim þakkir fyrir.

Drift er nú komin út í haga og ef allt gengur upp fæðist folald undan henni og Hannibal frá Þúfum næsta sumar.


Aðaleinkunn kynbótadóms 8,23

Sköpulagseinkunn - 8,38
Höfuð: 8,5 - Skarpt/þurrt
Háls, herðar og bógar: 8,5 - Hátt settur - Langur - Góð bógalega
Bak og lend: 8,5 - Vöðvafyllt bak - Afar öflug lend
Samræmi: 8,5 - Jafnvægisgott - Sívalvaxið - Brjóstdjúpt
Fótagerð: 8,5 - Rétt fótstaða
Réttleiki: 8,0 - Framf.: R) Brotin tálína
Hófar: 8,5 - Hvelfdur botn - Vel lagaðir
​Prúðleiki: 7,0
Hæfileikaeinkunn - 8,15
Tölt: 9,0 - Mjukt - Góð fótlyfta - Góður burður - Takthreint
Brokk: 8,0 - Takthreint
Skeið: 6,0 - Ferðlítið - ójafnt
Greitt stökk: 8,5 - Góð fótlyfta - Góð skreflengd
Hægt stökk: 9,0 - Mjúkt - Jafnvægisgott
Samstarfsvilji: 8,5 - Góð framhugsun
Fegurð í reið: 8,5 - Góð fótlyfta
​Fet: 8,0 - Takhreint
​Hægt tölt: 8,5 - Góð fótlyfta
0 Comments

Seðill og geisli 2023

4/29/2023

0 Comments

 
Picture
Seðill og Geisli frá Árbæ eru spennandi kostur fyrir ræktendur sem vilja rækta fallega, jafnvíga alhliða gæðinga með þjála og góða lund.

Seðill og Geisli verða á húsi og í girðingu hjá okkur í Árbæ sumarið 2023. Verðið undir þá er 150.000 m/vsk. Inn í verðinu er girðingargjald og 1 sónar. 

​
Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692, Lárus í síma 661 2145, Maríanna í síma 894 6611 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].


Seðill frá Árbæ, IS2015186939

B: 8,79 - H: 8,72 - Ae. 8,75
Aðaleinkunn kynbótamats 130 
​

F: Sjóður frá Kirkjubæ, ae. 8,70
M: Verona frá Árbæ, ae. 8,32
​
Picture
Geisli frá Árbæ, IS2017186936
​

B: 8,66 - H: 8,35 - Ae. 8,46
Aðaleinkunn kynbótamats 126


F: Ölnir frá Akranesi, ae. 8,82
​M: Gleði frá Árbæ, ae. 8,23
​

Picture
0 Comments

Vorið er að koma

4/5/2023

0 Comments

 
Það er alltaf merki um að vorið sé að koma þegar fyrsta folald ársins fæðis en það fæddist einmitt í morgun. Brún hryssa undan þeim Hilmu frá Árbæ og Seðli frá Árbæ.

Hilma móður hennar hlaut 8,04 í aðaleinkunn þegar hún fór í dóm og er hún undan Loka frá Selfossi og Hrefnu frá Árbæ. Seðill hlaut 8,75 í aðaleinkunn í kynbótadómi í fyrra og er undan þeim Veronu frá Árbæ og Sjóði frá Kirkjubæ. Þetta er annað afkvæmi Hilmu og Seðils en í fyrra fæddist þeim gullfallegur hestur, Hrókur frá Árbæ.

0 Comments

Seðill hlaut viðurkenningu

3/8/2023

0 Comments

 
Seðill hlaut viðurkenningu sem sem hæst dæmdi 6v stóðhesturinn, ræktaður af Fáksfélaga, árið 2021 með 8,68 í aðaleinkunn ásamt því að vera hæst dæmda kynbótahrossið ræktað af og í eigu Fáksfélaga 2021.

Hann var einnig heiðraður sem hæst dæmdi stóðhesturinn í flokki stóðhesta 7v og eldri árið 2022 með einkunnina 8,75 ásamt því að vera hæst dæmda kynbótahrossið ræktað af og í eigu Fáksfélaga 2022.

Erum óendanlega stolt af þessum einstaka gæðingi sem hefur nú lagt kynbótaskóna á hilluna og undirbýr sig nú í rólegheitunum fyrir verkefni framtíðarinnar.

Takk elsku Lárus og Ásta fyrir allan ykkar þátt í þessu og að hafa hugsað um hann eins og ykkar frá upphafi og takk Árni Björn fyrir að sýna hann með glæsibrag í kynbótadómi

Seðill frá Árbæ, f.ár 2015
F: Sjóður frá Kirkjubæ, ae. 8,70
M: Verona frá Árbæ, ae. 8,32
​
Aðaleinkunn kynbótamats 130
0 Comments

Heiðruð fyrir geisla og Ásdísi

11/21/2022

0 Comments

 
Picture
Um liðna helgi vorum við heiðruð fyrir Geisla frá Árbæ og Ásdísi frá Árbæ á uppskeruhátíð hestamannafélagsins Geysis. En þau voru hæst dæmdu kynbótahrossin í sínum flokkum ræktuð af félagsmönnum. Hann með 8,46 í aðaleinkunn sem 5 vetra stóðhestur og hún með 8,42 í aðaleinkunn sem 6 vetra hryssa.

Geisli er í okkar eigu og var sýndur af Árna Birni Pálssyni en Ásdís er í eigu Volker Sill og sýnandi hennar var Jakob Svavar Sigurðsson og óskum við þeim til hamingju með glæsilega sýningu á henni.

​--------
Last weekend we were awarded for breeding Geisli frá Árbæ and Ásdís frá Árbæ at our club Hestamannafélagið Geysir. They were the highest judged horses in their groups in FIZO, he as a 5 year old stallion with a total score of 8,46 and she as a 6 year old mare with a total score of 8,42.

Geisli is owned by us and was shown by Árni Björn Pálsson but Ásdís is owned by Volker Sill and 
shown by Jakob Svavar Sigurðsson and we would like to congratulate them.



0 Comments

Frændurnir á Landsmóti

7/22/2022

0 Comments

 
PictureStoltir, ræktendur, eigendur, þjálfarar og sýnandi með þá frændur
Þeir frændur Seðill og Geisli stóðu sig glæsilega á Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hellu fyrr í þessum mánuði.

Geisli frá Árbæ hafnaði í 2 sæti í flokki 5 vetra stóðhesta með 8,46 í aðaleinkunn.

Seðill hafnaði í 5 sæti í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri með 8,58 í aðaleinkunn.

​

0 Comments

Opið hús 10. júlí

7/3/2022

0 Comments

 
Picture
Við bjóðum ykkur velkomin í heimsókn til okkar sunnudaginn 10. júlí frá klukkan 11:00 - 16:00.  Hrossaræktarbúið Árbæ er  staðsett í Rangárþingi Ytra, um 6 km frá mótssvæðinu á Gaddstaðaflötum, Hellu. 

Okkur hafa fæðst um 40 fyrstu verðlauna hross frá því við hófum okkar ræktun. Seðill frá Árbæ er hæst dæmdi stóðhesturinn úr okkar ræktun með 8,75 í aðaleinkunn og heimsmeistarinn Garún frá Árbæ er hæst dæmda hryssan með 8,62 í aðaleinkunn. 

Léttar veitingar verða í boði og verða stóðhestarnir Seðill og Geisli á húsi ásamt efnilegu ungviði, mæðrum sínum  og fleiri gæðingum úr okkar ræktun. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn :)

-------- 
We would like to welcome you to open house at Árbær on Sunday July 10th, between 11:00 - 16:00. Árbær is located in Rangárþing Ytra, about 6 km from the competition area at Gaddstaðaflatir in Hella.

We have bred about 40 first prize horses since we started our breeding. The highest judged stallion is Seðill frá Árbæ with a total score of 8,75 and the world champion Garún frá Árbæ is the highest judged mare with a total score of 8,62.

We would like to invite you to come and have coffee with us and meet Geisli, Seðill, their moms, some promising youngsters and more of our horses. Looking forward to seeing you next Sunday :)

0 Comments

Seðill og Geisli taka á móti hryssum í Árbæ

6/21/2022

0 Comments

 
Frændurnir Seðill og Geisli frá Árbæ taka á móti hryssum í Árbæ, Rangárþingi Ytra, í sumar. Þeir verða í húsnotkun fram yfir Landsmót og verður þeim sleppt út í hryssur í kringum 10. júlí.
​
Geisli og Seðill eru spennandi kostir fyrir ræktendur sem vilja rækta fallega, jafnvíga alhliða gæðinga með þjála og góða lund.
​
  • Verð á folatolli undir Geisla er 100.000 m/vsk. Inn í því er girðingagjald og 1 sónar.
  • Verð á folatolli undir Seðil er 150.000 m/vsk. Inn í því er girðingagjald og 1 sónar.

Nánari upplýsingar um notkun veita Guðmundur í síma 899 5692 og Lárus í síma 661 2145 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
​

GEISLI FRÁ ÁRBÆ

IS2017186936, rauðtvístjörnóttur m/vagl í auga og leist
F: Ölnir frá Akranesi, ae. 8,82
FF: Glotti frá Sveinatungu, ae. 8,64
FM: Örk frá Akranesi, ae. 8,35
M: Gleði frá Árbæ, 8,23
MF: Vökull frá Árbæ, ae. 8,25
MM: Glás frá Votmúla, ae. 8.05
​
Aðaleinkunn kynbótamats 126
​

AÐALEINKUNN KYNBÓTADÓMS 8,45

Sköpulagseinkunn - 8,66
Höfuð: 7,5 - Vel opin augu - Djúpir kjálkar
Háls, herðar og bógar: 9,0 - Hátt settur - Langur - Klipin kverk - Góð yfirlína - Skásettir bógar - Afar háar herðar
Bak og lend: 9,5 - Afar góð baklína - Vöðvafyllt bak - Breitt bak - Afar öflug lend - Jöfn lend
Samræmi: 9,0 - Jafnvægisgott - Afar fótahátt - Hlutfallarétt - Jafn bolur
Fótagerð: 8,0 - Sverir liðir - Sinaskil í meðallagi - Þurrir fætur
Réttleiki: 7,5 - Útskeifur
Hófar: 8,5 - Hvelfdur botn
​Prúðleiki: 7,5

​Hæfileikaeinkunn - 8,34
Tölt: 8,5 - Góð skreflengd - Rúmt - Hvefld yfirlína - Takthreint
Brokk: 7,5 - Meðalrými - Takthreint
Skeið: 8,5 - Rúmt - Góð fótahreyfing
Greitt stökk: 9,0 - Léttar hreyfingar - Ferðmikið - Jafnvægisgott
Hægt stökk: 8,5 - Léttstígt - Takthreint
Samstarfsvilji: 8,5 - Góð framhugsun - þjálni
Fegurð í reið: 8,5 - Góð fótlyfta - Góður höfuðburður
​Fet: 8,0 - Takhreint
​Hægt tölt: 8,0 - Góð fótlyfta

SEÐILL FRÁ ÁRBÆ

IS2015186939, rauðstjörnóttur

​F: Sjóður frá Kirkjubæ, ae. 8,70
FF: Sær frá Bakkakoti, ae. 8,62
FM: Þyrnirós frá Kirkjubæ, ae. 8,46
M: Verona frá Árbæ, ae. 8,32
MF: Aron frá Strandarhöfði, ae. 8,54
MM: Vigdís frá Feti, ae. 8,36


Aðaleinkunn kynbótamats 130
​​

AÐALEINKUNN KYNBÓTADÓMS 8,75

Sköpulagseinkunn - 8,79
Höfuð: 8,5 - vel borin eyru - Bein neflína
Háls, herðar og bógar: 9,0 - Reistur - Meðal hálssetning - Langur - Hvelfd yfirlína
Bak og lend: 9,0 - Góð baklína - Vöðvafyllt bak - Breitt bak 
Samræmi: 9,0 - Framhátt - Fótahátt - Sívalvaxið - Hlutfallarétt
Fótagerð: 8,5 - Þurrir fætur - Öflugar sinar
Réttleiki: 8,0
Hófar: 9,0 - Hvelfdur botn - Efnisþykkir - Vel lagaðir
​Prúðleiki: 7,5

​
​
​Hæfileikaeinkunn - 8,72
Tölt: 8,5 - Góð fótlyfta - Góð skreflengd - Rúmt - Takthreint
Brokk: 9,0 - Góð skreflengd - Svifgott - Rúmt - Takthreint
Skeið: 9,0 - Rúmt - Góð skreflengd - Svifgott - Sterk yfirlína - Taktgott
Greitt stökk: 8,0 - Góð skreflengd
Hægt stökk: 8,0 - Góð skreflengd - Takthreint
Samstarfsvilji: 9,0 - Góð framhugsun - Mikil þjálni
Fegurð í reið: 9,0 - Góð fótlyfta - Mikil reising - Fasmikið
​Fet: 8,5 - Góð skreflengd - Stöðugt - Takhreint
​Hægt tölt: 8,5 - Góð fótlyfta - Góð skreflengd
0 Comments
<<Previous
Forward>>

    Author

    Write something about yourself. No need to be fancy, just an overview.

    Archives

    July 2024
    June 2024
    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    April 2023
    March 2023
    November 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    February 2022
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Home
  • Breeding
    • Breeding mares
    • Fallen queens
  • Stallions
    • Seðill frá Árbæ >
      • Afkvæmi Seðils
  • News
  • Pictures